← Allir viðburðir

2. október 2026 – 4. október 2026

Hjartað norður á Drangsnes

Retreat með Helga Jean á Malarhorni

Malarhorn, Grundargötu 17, 520 Drangsnes

Komdu norður á Strandir og gefðu þér helgi til að hægja á, stíga út úr amstri dagsins og finna innri ró í kyrrðinni við sjóinn.

Á þessu retreati leiðir Helgi Jean þátttakendur í gegnum einlægar vinnustofur og samtöl ásamt öndun, hreyfingu, kakóathöfn og leiddri slökun. Inn á milli verður rúmur tími til að hvíla sig, ganga um Drangsnes, njóta náttúrunnar og slaka á í heitu pottunum við sjóinn.

Þetta verður hvorki stíft námskeið né hátíðlegt eða „djúpt andlegt“ retreat. Helgin einkennist af einlægni, hlýju, húmor, léttleika og afslöppuðu andrúmslofti.

Þú þarft ekki að hafa farið á retreat áður, kunna að hugleiða eða hafa reynslu af kakóathöfnum. Þú mátt einfaldlega koma eins og þú ert.

Fyrir hverja er retreatið? 🍂

Retreatið er fyrir fullorðið fólk sem:

  • Er þreytt á hraða og stöðugu áreiti
  • Langar að finna meiri ró, frelsi eða skýrleika
  • Stendur á tímamótum í lífinu
  • Vill tengjast sjálfu sér og öðru fólki
  • Hefur áhuga á sjálfsvinnu án þess að fara á stíft námskeið
  • Langar að prófa retreat í öruggu og afslöppuðu umhverfi

Þú þarft ekki að laga þig þessa helgi. Þú færð einfaldlega rými til að hægja á, hlusta og vera þú sjálf/ur.

Innifalið ✨

  • Gisting á Malarhorni í tvær nætur
  • Allar máltíðir frá föstudegi til sunnudags
  • Öll dagskrá og leiðsögn Helga Jean
  • Kakóathöfn
  • Morgunæfingar og leidd slökun
  • Vinnustofur
  • Náttúrutími, sund og pottastundir

Verð á mann

  • Einstaklingsherbergi – 94.900 kr.
  • Tveir saman í herbergi – 87.900 kr.
  • Þrír eða fleiri í herbergi – 78.900 kr.

Komdu með hjartað norður og gefðu þér helgi án hraðans, hávaðans og pressunnar um að þurfa alltaf að vera að gera eitthvað.

Bókanir og frekari upplýsingar: malarhorn@malarhorn.is